Friday, 16 January 2009

Slökkviliðsmenn rokka


Almennt finnst mér óviðeigandi að tala um kraftaverk og sérstaklega í fréttaflutningi eins og af húsbrunanum í nótt á Klapparstíg. Það að allir hafa sloppið undan brunanum er ekki kraftaverki að þakka heldur ótrúlegum dugnaði slökkviliðsmanna og annarra sem börðust við eldinn og björguðu lífi fólks. Maður á að gefa afreksfólki sem þessu fullan heiður en ekki einhverju yfirnáttúrulegu húllumhæi. (PS. nema náttúrulega sé verið að meina eiginlega merkingu þess orðs kraftaverk=verk krafta. Því þessi björgunaraðgerð var án efa mikið kraftaverk - bara af mannavöldum).

0 comments: