Wednesday, 28 January 2009

Hr. Eðluelskhugi

Í framhaldi af umræðu minni um mannanöfn þá var ég að horfa á erlenda sjónvarpsstöð í fyrradag sem er ekki frásögu færandi nema hvað þar var maður sem breytti nafninu sínu í Henry Lizardlover vegna dálæti síns á eðlum. Honum fannst það frábært að geta borið nafn sem lýsir honum svona vel og fannst það æðislegt hvernig gjaldkerarnir í bankanum brostu út í annað þegar hann afhenti þeim skilríki. "Here in America we can do these things." Það er frábært að fullorðinn og sjálfráða einstaklingur búi við það frelsi að geta látið drauma sína rætast þó það sé ekki merkilegra en svo en að velja sér sitt uppáhaldsnafn.

Þess má til gamans geta að þessi tiltekni Lizardlover kynntist stúlku sem hét Linda og henni fannst það ekkert smá spennandi að geta orðið Frú Linda Lizardlover - eini ókosturinn var að hann þoldi hana ekki.

0 comments: