Tuesday, 2 December 2008

Veljum fjölbreytni og leggjum niður mannanafnanefnd


Svona í ljósi þess að allir eru að spara og meira að segja ríkið! hví ekki að leggja niður mannanafnanefnd í leiðinni? Ég er alltaf að rekast á svo furðulega úrskurði mannanafnanefndar að það er bara fyndið...
Fullorðin manneskja sótti um að heita Kona en mannanafnanefnd hafnaði því alfarið. Rökin fyrir því eru frekar fyndin. Ástæðan fyrir því að karlar megi bera nafnið Karl er vegna þess að fyrir því er rík hefð en sú hefð er ekki til staðar þegar kemur að nafninu Kona. Og svo má nafnið ekki verða neinum til ama:

"Þegar svo háttar að fullorðin kona sækir um að taka upp nýtt nafn er ekki unnt að fullyrða að nafnið verði nafnbera til ama, enda kveðst umsækjandi hafa notað nafnið um skeið. Hins vegar verður ekki hjá því komist að hafa í huga að með því að setja nafn á mannanafnaskrá er það um leið orðið mögulegt nafn fyrir nýfædd börn. Gera má ráð fyrir að eiginnafnið Kona geti hugsanlega orðið barni til ama og því er ekki heppilegt að slíkt nafn sé á mannanafnaskrá."

Það er crazy að fullorðinni manneskju sé meinað að heita eitthvað bara því það gæti hugsanlega, mögulega, einhvern tímann seinna orðið barni til ama (fyrir utan það að ég sé enga ástæðu fyrir því afhverju nafnið Kona gæti verið einhverjum til ama...kannski lægri laun og allur sá pakki?). Börnum er strítt sama hvort þau beri skrítin nöfn eða ekki. Þannig er það bara.
Mannanafnanefnd hlýtur að teljast einstaklega heftandi fyrirbæri sem hindrar alla þróun í íslenskum mannanöfnum og kemur í veg fyrir að nýjar hefðir skapist.
Ímyndum okkur bara ef stjörnurnar mættu ekki nefna börn sín skrítnum nöfnum. Hversu leiðinlegur væri heimurinn eiginlega?:

Leikarinn Jason Lee með syni sínum Pilot Inspektor.

Nicholas Cage með syni sínum Kal El

5 comments:

Regnhlif said...

Maður myndi halda að fólki væri treystandi til þess að velja nöfn á börnin sín sem væru þeim ekki til ama... en svo virðist greinilega ekki vera:) Og þá er ég ekki að tala um eitthvað sem mér persónulega finnst ekki fallegt, eins og Rómeó:), heldur eitthvað eins og "Taloolah Does The Hula in Hawai" eða hvað sem einhver vesalings stelpa var skýrð, eða nöfn sem eru tölur og svona ýmislegt skemmtilegt.

Mannanafnanefnd á líka að verna föðurnafnakerfið okkar, sem ég er mjög hlynnt, mér finnst það skemmtilegur hluti af menningunni okkar.

Ég veit þú aðhyllist eins mikið frelsi einstaklingsins eins og hægt er, og út frá því skil ég það að þú sért á móti mannanafnanefnd. Ég er hins vegar hlynnt því að einhver fylgist með því hvaða nafni börn eru skírð, einfaldlega vegna þess að þetta GETUR orðið til ama. Og svo má bara breyta nafninu sínu einu sinni, og sumir foreldrar skipta um skoðun eftir skírn og breyta um nafn á barninu og þá getur barnið aldrei breytt nafninu sínu.

Jamm, ég er hlynnt mannanafnanefnd, þó svo að ég sé ekki endilega sammála um alla dóma þeirra, enda verður alltaf matsatriði hvenær á að beita amaákvæðinu. Hins vegar er hefðarregla.

Regnhlif said...

og í skammdeginu er skemmtilegur leikur að telja innsláttar-og stafsetningarvillurnar í þessu kommenti:) Og maður á að heita íslenskufræðingur;)

Regnhlif said...

æ, og það vantaði lokin á fyrsta kommentinu.

"hins vegar er hefðarreglan einföld."

María Margrét said...

Aha! mér datt í hug að íslenskufræðingurinn myndi kommenta á þetta hjá mér ;)

Ég velti því samt fyrir mér hvort það sé í lagi að vegna þess að 0,01 prósent foreldra flippi út og velji ljótt nafn á barnið sitt þá réttlæti það að verið sé að setja öllum hinum "góðu" foreldrunum sem ERU treystandi til þess að velja nöfn á börnin sín mjög íþyngjandi reglur.

Svo er líka áhugavert að hugsa til þess að föðurnafnakerfið og íslensku nöfnin hafa haldið sér síðan ég veit ekki hvenær. Löngu áður en mannanafnanefnd varð til en eftir því sem ég best veit þá var hún ekki sett í lög fyrr en um 1991. Merkilegt hvað fólk gat reddað sér fram að því :)

En aðallega finnst mér það ekki fallegt þegar yfirvöld ætla að ráða nöfnum fólks. Ef eitthvað á að vara til framtíðar eins og t.d. föðurnafnakerfið þá er það mun fallegra að það endist vegna þess að fólk velji það framyfir annað en ekki vegna tilskipunar að ofan.

Þá fer hefðarreglan einstaklega í pirrurnar á mér því hvernig geta nýjar hefðir skapast ef yfirvöld leyfa það ekki? Eru nýjar hefðir verri en gamlar?

Og hvað er málið með að mega bara skipta um nafn einu sinni? Ætla ekki einu sinni að fara út í þá umræðu hehe... :)

Regnhlif said...

það eru nú einhverjar glufur á hefðarreglunni held ég, eins og að það getur verið nóg að nafnið komi fram sem nafn í íslenskri bók minnir mig.

ég er kannski ekki sammála þér um að reglurnar séu "mjög íþyngjandi":)