Thursday, 18 December 2008

Jólin nálgast...


...og ég er löngu búin að skrifa öll jólakort og búin að pakka inn öllum gjöfum, kaupa mestallan jólamatinn, baka, taka til, kaupa jólatré, horfa á jólamyndir... Svo gaf ég mæðrastyrksnefnd eitt stykki hamborgarahrygg og smá með því, lagði jóladúkinn í bleyti, á bara eftir að þrífa ísskápinn almennilega. Er ég að gleyma einhverju?


Um síðustu helgi dreymdi mig að það væri kominn aðfangadagur og ég ætti eftir að gera ALLT og alla þá helgi var ég með kvíðahnút í maganum. Þvílík martröð. Þá fór ég að búa til lista og strika út allt jafnóðum - ofurskipulögð. Núna finnst mér eins og ég sé örugglega að gleyma einhverju því listinn er ekkert svo langur. Mjög óþægilegt!


En jólin verða hressandi á Sólvallagötunni - 6 manns í mat á aðfangadag og 8 manns í mat á gamlárskvöld. Get ekki beðið eftir því að snúa sólarhringnum algjörlega við! Gleðileg jól...

0 comments: