Monday, 21 December 2009

Gleðilega hátíð!

...vá hvað mér líst vel á svona bleikt jólatré!

Thursday, 8 October 2009

Vá töff hús


Mig vantar svona stækkanlegan kjól!


Thursday, 28 May 2009

Dóra Steinunn og Hjaltalín

Í þessari viku fór ég á tvenna tónleika, annars vegar einsöngstónleika hjá Dóru Steinunni Ármannsdóttur en hún er hálærð óperusöngkona í hæsta gæðaflokki og hins vegar tónleika með hljómsveitinni Hjaltalín ásamt kammersveit í Íslensku óperunni.

Dóra Steinunn er algjör snillingur þegar kemur að sviðsframkomu og skemmtilegast var þegar hún tók aríur úr Carmen eftir Bizet og dansaði senjórítudans með. Geri aðrir betur! Ég vona að hún eigi eftir að halda fleiri tónleika hér á landi á komandi árum.

Hjaltalín náðu að skapa einstaklega skemmtilega stemningu og lögin þeirra hlómuðu vel með kammersveitinni. Það var samt augljóst að allir í salnum voru að bíða eftir Páls Óskars laginu í uppklappinu en þeir tóku það ekki þrátt fyrir dynjandi uppklapp. Þeir tóku bara eitt uppklappslag sem var þetta gamla sjómannalag sem var flott og svo ekkert meir. Tvö uppklöppslög eru amk lágmark að mínu viti. Mjög góð skemmtun og góður söngur en endaði svolítið snubbótt.

Wednesday, 22 April 2009

Mynd dagsins...

Pierre et Gilles

Wednesday, 1 April 2009

Nýja uppáhaldið...

...er Glenn Beck. Hann er bara of skemmtilegur. Tékkið á þessu myndbandi um ógnvænlega peningaprentun Bandaríkjanna. Það gerir þetta enginn betur en hann.

Friday, 20 March 2009

Girnó...

Mig langar í svona marglita köku...til að horfa á...mmm....Hvernig bakar maður eiginlega svona köku?